Handbolti

Zaporozhye og Kiel spila í Ungverjalandi

Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel.
Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel. vísir/bongarts
Tekin hefur verið sú ákvörðun að færa leik úkraínska liðsins HC Zaporozhye og þýska liðsins Kiel í Meistaradeildinni frá Úkraínu.

Leikurinn á að fara fram þann 20. mars en það er fyrri leikur liðanna í sextán liða úrslitum keppninnar.

Sökum ástandsins í Úkraínu verður leikurinn spilaður í Györ í Ungverjalandi.

Möguleikar úkraínska liðsins voru ekki metnir miklir gegn Kiel en þessi breyting eykur ekki líkurnar á því að liðið geti lagt lið Alfreðs Gíslasonar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×