Handbolti

Sigur hjá Gunnari en tap hjá Arnóri

Gunnar Steinn Jónsson.
Gunnar Steinn Jónsson.
Gunnar Steinn Jónsson og félagar í Nantes unnu góðan eins marks sigur, 26-25, á AIX í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Gunnar Steinn tók tvö skot í leiknum en inn fór boltinn ekki hjá honum að þessu sinni. Spænski landsliðsmaðurinn Alberto Entrerrios fór aftur á móti mikinn í liði Nantes og skoraði sex mörk.

Arnór Atlason skoraði svo eitt mark fyrir St. Raphael sem tapaði, 35-31, fyrir Montpellier.

Nantes er í fjórða sæti deildarinnar en St. Raphael því sjöunda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×