Körfubolti

Helena tapaði í toppslag

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Vísir/Daníel
Helena Sverrisdóttir skoraði fjórtán stig þegar lið hennar, DVTK Miskolc, tapaði fyrir Uniqa Euroleasing í toppslag ungversku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Uniqa vann með þrettán stiga mun, 74-61, en Helena var stigahæst í liði Miskolc. Staðan í hálfleik var 26-25, Uniqa í vil, en gestirnir stungu svo af í þriðja leikhluta og gerðu þannig út um leikinn.

Miskolc er þó enn á toppi deildarinnar en Uniqa fylgir svo fast á hæla Helenu og félaga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×