Körfubolti

Helena með þrettán stig í öruggum útisigri

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Vísir/Daníel
Helena Sverrisdóttir og stöllur hennar Miskolc unnu fimm stiga útisigur á Gyor, 70-65, í ungversku kvennadeildinni í körfubolta í dag.

Íslenska landsliðskonan skoraði 13 stig eins og þrír samherjar hennar en Helena hitti úr öllum fimm skotum sínum úr teignum og þremur af fjórum vítaskotum.

Hún var aftur á móti ekki jafnheit fyrir utan þriggja stiga línuna en hún brenndi af úr öllum þriggja stiga tilraunum sínum. Hún tók að auki fjögur fráköst á þeim 26 mínútum sem hún spilaði.

Helena og stelpurnar í Miskolc komust í toppsæti deildarinnar með sigrinum en þær hafa unnið fjórtán leiki og tapað þremur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×