Handbolti

Berlínarrefirnir unnu

Bjarki Már Elísson skoraði fimm mörk í tapi Eisenach í dag.
Bjarki Már Elísson skoraði fimm mörk í tapi Eisenach í dag. Heimasíða Eisenach
Lærisveinar Dags Sigurðssonar í Füsche Berlin unnu tveggja marka sigur, 25-23, á TuS N-Lübbecke á heimavelli sínum í þýska úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Iker Romero og Konstantin Igropulo voru markahæstir í liði Berlínarrefanna með fimm mörk hvor. Ales Pajovic skoraði átta mörk fyrir Lübbecke.

Bjarki Már Elísson skoraði fimm mörk og Hannes Jón Jónsson þrjú þegar Eisenach tapaði fyrir Minden á útivelli, 25-23. Aljoscha Schmidt var markahæstur í liði Minden með átta mörk, en Vignir Svavarsson komst ekki á blað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×