AaB pakkaði FCK saman í úrslitum bikarsins | Rúrik skoraði Tómas Þór Þórðarson skrifar 15. maí 2014 19:52 Rasmus Thelander skoraði tvö mörk. Mynd/aab
AaB frá Álaborg vann stórlið FC Kaupmannahafnar, 4-2, í úrslitaleik dönsku bikarkeppninnar í fótbolta í kvöld en leikurinn fór fram á Parken, heimavelli FCK. FCK tók forystuna í leiknum með marki AndreasCornelius á 18. mínútu leiksins en hann kom aftur til liðsins frá Cardiff í janúar eftir nokkra dapra mánuði í ensku úrvalsdeildinni. AaB jafnaði leikinn með marki miðvarðarins RasmusarThelanders á 41. mínútu þegar hann stangaði boltann í netið eftir hornspyrnu. Thelander skoraði svo annað mark með skalla eftir horn þremur mínútum síðar.Rúrik Gíslason kom inn á sem varamaður hjá FCK á 69. mínútu en þremur mínútum eftir það komst AaB í 3-1 með marki KaspersRisgårds. Álaborgarmenn voru ekki hættir því SörenFrederiksen bætti við fjórða markinu á 74 mínútu. Rúrik minnkaði muninn í 4-2 með marki á 89. mínútu en það var of lítið og of seint. Lokatölur, 4-2, og bikarinn til Álaborgar. Tímabilið hefur verið hreint ótrúlegt hjá AaB sem stefndi í gjaldþrot og er að spila mestmegnis á ungum og uppöldum Dönum. Engum óraði fyrir árangri liðsins á tímabilinu en það er nú þegar orðið danskur meistari og fer því beint í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Fjárhagnum er því bjargað enda liðið tvöfaldur meistari í Danmörku.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Diogo Jota lést í bílslysi Fótbolti Arnar Pétursson dæmdur úr leik á Íslandsmótinu og er mjög ósáttur Sport Yfirlýsing frá Liverpool: „Ólýsanlegur missir“ Enski boltinn Glódís mætti ekki á æfingu Fótbolti Fótboltaheimurinn syrgir fallna félaga Fótbolti EM í dag: Þungt högg, óvæntur fáni og indverskur matur Fótbolti Hafnaði ágengum Egyptum en er til í að taka við félagsliði Handbolti Ásthildur Helga: Þetta var bara lélegt Fótbolti „Óbætanlegur missir fyrir portúgalska knattspyrnu“ Fótbolti Stefán vann í stað Arnars Sport Fleiri fréttir Besti hópur sem ég hef unnið með: „Þær vilja vita öll smáatriði“ „Það er ekki þörf á mér lengur“ Fékk rautt spjald fyrir ári síðan og má ekki spila í kvöld Cecilía og Sveindís mynda gott grínpar: „Hún er léttklikkuð“ Skriðdrekar á ferð við æfingasvæði Íslands Forsetinn hressti stelpurnar við: „Hitti algjörlega naglann á höfuðið“ EM í dag: Þungt högg, óvæntur fáni og indverskur matur Þorsteinn um fráfall Jota: „Sorglegar fréttir“ Fótboltaheimurinn syrgir fallna félaga Mínútu þögn fyrir leik Portúgals í kvöld Varð fullorðinn úti Yfirlýsing frá Liverpool: „Ólýsanlegur missir“ Glódís mætti ekki á æfingu „Óbætanlegur missir fyrir portúgalska knattspyrnu“ Borgaði bara ungmennaliðinu laun og nú má allt aðalliðið fara frítt Diogo Jota lést í bílslysi Hita upp fyrir HM með úrslitaleik um Gullbikarinn Myndasyrpa: Stelpurnar vel studdar í svekkjandi tapi „Ótrúlega gott fyrir hjartað að sjá þau“ Ásthildur Helga: Þetta var bara lélegt Skýrsla Arons: Afleit byrjun sem verður nú að svara fyrir Sveindís og félagar sendar í frí á meðan HM karla fer fram Systurnar hugsi vegna virkni stelpnanna á TikTok Dramatík í endurkomusigri Norðmanna í hinum leik íslenska riðilsins Jóhann Berg kominn með nýtt lið á Arabíuskaganum Sveindís: Hefði kannski átt að gera meira til að koma mér inn í leikinn „Heilt yfir var ég bara sáttur“ „Ég var bara með niðurgang“ Ingibjörg: Gríðarlega svekkjandi „Mér fannst við alveg halda þeim í skefjum“ Sjá meira