Handbolti

Allir á Íslandi munu horfa á okkur í sjónvarpinu

Hvor þeirra verður meistari á laugardag?
Hvor þeirra verður meistari á laugardag? vísir/getty
Það vekur eðlilega mikla athygli í Þýskalandi að gömlu herbergisfélagarnir í íslenska landsliðinu - Alfreð Gíslason og Guðmundur Guðmundsson - séu að fara að berjast um þýska meistaratitilinn í handbolta á laugardag.

Lið þeirra félaga, Kiel og Rhein-Neckar Löwen, eru með sama stigafjölda í deildinni þegar aðeins ein umferð er eftir. Lið Guðmundar stendur þó betur að vígi með betri markatölu og á auðveldari leik fyrir höndum.

Sport1 í Þýskalandi er með skemmtilega grein um þá félaga í dag þar sem þeir tala fallega um hvorn annan.

"Það lið sem endar í fyrsta sæti á það skilið. Það er ekkert flókið," segir Alfreð sem þekkir það vel að verða þýskur meistari enda hampað titlinum sjö sinnum.

"Það er alltaf skemmtilegra að vinna en óska öðrum til hamingju. Á laugardaginn munu allir á Íslandi fylgjast með okkur í sjónvarpinu."

Guðmundur er nokkrum mánuðum yngri en Alfreð og ber mikla virðingu fyrir félaga sínum.

"Þegar Alfreð var mjög ungur að aldri var hann þegar orðinn fagmannlegur í sínum vinnubrögðum. Hann var frábær leikmaður á Spáni og í Þýskalandi og þar lærði hann mikið. Handboltaheimspeki okkar er samt svipuð enda lærðum við af sama manninum," sagði Guðmundar og vitnar þar til Pólverjans Bogdan Kowalczyk sem stýrði þeim félögum hjá landsliðinu.

Guðmundur verður að stýra Löwen í síðasta skipti á laugardag og það væri magnað afrek hjá honum að kveðja með meistaratitli.

"Okkar lið hefur þroskast mikið á síðustu tveim árum. Við spilum með hjartanu og af mikilli ákefð. Við berjumst til síðustu mínútu og þetta lið hefur unnið fyrir titlinum," segir Guðmundur og Alfreð hrósar honum einnig.

"Guðmundur er ótrúlega duglegur og gríðarlega agaður. Hans afrek tala sínu máli."

Eini munurinn sem Sport1 finnur á þeim félögum er að þeir koma frá sitt hvorum landshlutanum. Alfreð er frá Akureyri á meðan Guðmundur er úr borginni.

"Við getum drukkið mun meira en þessir kallar fyrir sunnan," segir Alfreð léttur en Guðmundur svarar að bragði. "Þessir menn fyrir norðan telja sig alltaf vita allt."

Leikir beggja liða verða sýndir á sportrásum Stöðvar 2 á laugardag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×