Körfubolti

Popovich sagði blaðamann ekki vera mikils virði

Gregg Popovich getur verið óvæginn.
Gregg Popovich getur verið óvæginn. vísir/getty
Gregg Popovich, þjálfara San Antonio Spurs, er ekki uppáhald bandarískra blaðamanna enda hefur Popovich sérstaklega gaman af því að gera þeim lífið leitt.

Eftir að hafa slátrað Oklahoma í nótt var einhver púki í Popovich sem tók einn blaðamann í gegn á blaðamannafundinum eftir leik.

Grípum aðeins niður í spjall Pop og blaðamannsins.

Blaðamaður: Fimm leikir, fimm stórsigrar. Geturðu útskýrt það fyrir okkur sem skiljum leikinn ekki nógu vel?

Pop: Er þér alvara? Heldurðu í alvörunni að ég geti útskýrt þetta?

Blaðamaður: Ég veit þú getur það á einfaldan hátt. Eina spurning er hvort þú viljir gera það?

Pop: Guð minn góður. Þú ert að fá greitt fyrir þína vinnu er það ekki?

Blaðamaður: Mjög lítið.

Pop: Það kemur ekki á óvart. Þú ert ekki mikils virði.

Síðar á fundinum fékkst Pop til þess að svara spurningum eins og maður.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×