Stórsigur Avaldsnes Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. júní 2014 14:47 Hólmfríður var á skotskónum í dag. Facebook síða Avaldsnes
Þrír leikir fóru fram í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.Hólmfríður Magnúsdóttir og Þórunn Helga Jónsdóttir voru báðar í byrjunarliði Avaldsnes sem vann stórsigur, 7-0, á Amazon Grimstad á heimavelli. Það var strax ljóst í hvað stefndi. Brasilíukonan Debora kom Avaldsnes yfir strax á upphafsmínútu leiksins og hún bætti svo við öðru marki sex mínútum síðar. Landa hennar, Rosana, kom Avaldsnes í 3-0 á 16. mínútu og Debora skoraði svo sitt þriðja mark á 22. mínútu. Sænska landsliðskonan Cecilie Pedersen, Debora og Hólmfríður bættu svo þremur mörkum við áður en hálfleikurinn var allur. Staðan var 7-0 í hálfleik og Hólmfríður og stöllur hennar létu það gott heita. Avaldsnes situr í 5. sæti deildarinnar með 17 stig. Røa vann sigur á Kolbotn á heimavelli með tveimur mörkum gegn engu. Synne Hansen og Sofie Jensen skoruðu mörk Røa í seinni hálfleik, en liðið er nú fjórum stigum á eftir toppliði Lillestrøm sem gerði 1-1 jafntefli við Stabæk. Anna Westerlund kom Lillestrøm yfir á 63. mínútu en Elise Thorsnes jafnaði metin fjórum mínútum fyrir leikslok.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Bruno til bjargar Enski boltinn Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Enski boltinn Leika fyrir luktum dyrum í öðru landi eftir lætin í Amsterdam Fótbolti „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Íslenski boltinn Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Fótbolti Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Fótbolti Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga Fótbolti Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Íslenski boltinn Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Fótbolti Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Fótbolti Fleiri fréttir Leika fyrir luktum dyrum í öðru landi eftir lætin í Amsterdam Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Bruno til bjargar Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Kristófer áfram í Kópavogi Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni „Eitthvað sem maður mun muna eftir alla ævi“ Hlín fór á kostum og finnur fyrir áhuga: „Hef ekki tekið ákvörðun“ Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Elanga ekki í landsliðshóp Svía og neitar að svara þjálfaranum Nkunku til sölu þrátt fyrir að vera markahæstur Pogba við það að rifta samningi sínum við Juventus Nistelrooy yfirgefur Man United með tilkomu Amorim Fékk símtal frá Arteta en bætti Ödegaard í hópinn Í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að kýla dómara Sjá meira