Woods byrjaði ekki vel á fyrsta hring í endurkomu sinni 26. júní 2014 23:54 Tiger Woods er enn í fyrsta gír. AP/Getty
Tiger Woods byrjaði ekki vel á fyrsta hring sínum á PGA-mótaröðinni eftir bakaðgerðina sem hélt honum frá keppni í þrjá mánuði en hann lék Congressional völlinn á 74 höggum eða þremur yfir pari. Woods fékk sjö skolla á fyrstu 12 holunum á hringnum og var um tíma meðal neðstu manna en bætti upp fyrir það með þremur fuglum á síðustu sex holunum. Quicken Loans National er fyrsta og eina mótið sem Woods mun leika í áður en Opna breska meistaramótið fer fram í næsta mánuði. Fleiri þekktir kylfingar áttu í erfileikum í dag en eins og Woods léku þeir Jordan Spieth og Justin Rose báðir á 74 höggum á fyrsta hring. Í efsta sæti er Ástralinn Greg Chalmers en hann lék á 66 höggum í dag eða fimm höggum undir pari. Freddie Jacobson og hinn högglangi Ricky Barnes eru jafnir í öðru sæti á fjórum höggum undir. Annar hringur verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni á morgun frá klukkan 18:30.
Mest lesið Van Gerwen kemur trans konunni til varnar: „Þetta er svo sárt“ Sport Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Enski boltinn Gagnrýnir blaðamann sem gerði grín að útliti hennar Sport „Ég bað ekki um fjögur stig en fékk fjögur stig“ Sport Íslandsmeistarinn úr leik og þrettán ára gutti stal senunni Sport Teitur spilaði með manni sem dekkaði Jordan og drakk kippu af bjór fyrir æfingar Körfubolti Arteta svekktur eftir jafntefli á Brúnni: „Snýst um að vinna“ Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif 6. umferðar Körfubolti Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Enski boltinn „Ég vil ekki deyja í sjúkrarúmi heldur í hringnum“ Sport Fleiri fréttir „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira