Íslenskir kylfingar sem sækja í golfferðir erlendis eru kröfuharðir. Þeir fara fram á að gæði golfvalla og þjónusta sé fyrsta flokks. Þeir kylfingar sem heimsækja Dale Hill munu ekki verða fyrir vonbrigðum. Golfsvæðið samanstendur af tveimur 18 holu golfvöllum, fjögurra stjörnu hóteli, fínu æfingasvæði, frábærum veitingastað ásamt líkamsræktar- og baðaðstöðu. Það er auðvelt að slappa af og njóta lífsins á Dale Hill sem er afar vinalegur staður til að heimsækja.

Dale Hill golfsvæðið er um 350 hektarar að stærð. Árið 1997 var Woosnam-völlurinn tekinn í notkun en hann er eins og nafnið gefur til kynna hannaður af Ryder-bikar hetjunni Ian Woosnam frá Wales. Sannkallaður Championship völlur. Woosnam-völlurinn var í frábæru ásigkomulagi þegar undirritaður lék hann í vor. Þrátt fyrir einn blautasta vetur í manna minnum í Englandi þá var Woosnam-völlurinn frábær og svo sannarlega í betra ásigkomulagi en margir aðrir vellir í Suður-Englandi. Miklum fjármunum hefur verið varið í að tryggja að vellirnir á Dale Hill golfsvæðinu skili fljótt frá sér vætu.
Hönnun vallarins er sömuleiðis frábær. Ian Woosnam lét hafa eftir sér skömmu eftir að völlurinn var tekinn í notkun að hann hefði hannað völlinn með jafnvægi að leiðarljósi. Völlurinn væri nógu erfiður fyrir atvinnumenn en á sama tíma nógu auðveldur fyrir áhugamenn og forgjafarhærri kylfinga. Honum tókst ætlunarverk sitt. Völlurinn er 5430 metra langur af gulum teigum og par 71. Fyrstu holur vallarins eru vinalegar og einn af helstu kostum vallarins er að á mörgum brautum er dræverinn algjörlega óþarfur.

Ekta enskur klúbbvöllur
Eldri völlurinn á Dale Hill er samnefndur golfsvæðinu og var tekinn í notkun árið 1973. Það kom undirrituðum nokkuð á óvart hversu miklu meiri umferðin var um Dale Hill-völlinn en hinn stórglæsilega Woosnam völl. Kannski var um tilviljun að ræða en þó er líklegt að eldri meðlimir kjósi fremur að leika á Dale Hill-vellinum sem er mjög skemmtilegur 18 holu völlur og öllu auðveldari en nágranni sinn.
Völlurinn er nokkuð styttri en Woosnam-völlurinn, er 4960 metrar að lengd af gulum teigum og spilast sem par 69. Fyrri níu holurnar eru tiltölulega opnar en skógurinn spilar meiri rullu á seinni níu og brautirnar talsvert þrengri. Skemmtilegur golfvöllur þar sem miklu skiptir að halda boltanum í leik. Saman mynda Dale Hill og Woosnam-vellirnir öflugt tvíeyki golfvalla sem kylfingar fá seint leið á.

Þægindi hótelsins minna fljótt á sig. Hótelherbergin eru sérstaklega rúmgóð og maturinn á veitingastað hótelsins stóð svo sannarlega undir væntingum. Milli hringja er tilvalið að taka sundsprett í sundlauginni eða njóta alls þess sem baðaðstaðan hefur upp á að bjóða. Stór kostur er nálægð við golfvellina og aðeins tekur örfáar mínútur að ganga á fyrsta teig. Sömu sögu er að segja af æfingasvæðinu og púttflötunum tveimur þar sem æfa má stutta spilið. Golfsvæðið býr yfir talsverðum flota golfbíla og engin fyrirstaða að fá golfbíl fyrir golfhringinn. Ef heimsækja á golfsvæði á Bretlandseyjum þá er Dale Hill frábær kostur.


