Handbolti

Ekkert íslenskt mark í naumum sigri Löwen

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Geir Sveinsson
Geir Sveinsson mynd/heimasíða Magdeburg
Rhein-Neckar Löwen vann tæpan 24-23 sigur á lærisveinum Geirs Sveinssonar í Magdeburg í dag á heimavelli sínum í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Íslendingarnir í liði Ljónanna komust ekki á blað.

Uwe Gensheimer fór fyrir Ljónunum og skoraði 9 mörk en Alexander Petersson og Stefán Rafn Sigurmannsson leika báðir með liðinu.

Robert Weber skoraði 9 mörk fyrir Magdeburg sem var lengi yfir í leiknum en brotnaði á lokasprettinum.

Sveinbjörn Pétursson kom í mark Aue undir lok leiks liðsins gegn Hüttenberg í þýsku fyrstu deildinni og varði eitt skot í eins marks sigri 27-26.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×