En hljómsveitin Kontinuum mun einmitt koma fram á Jack Live tónleikunum sem verða á Gauknum laugardagskvöldið 20.sept næstkomandi.
Þá skýst lagið Stolen Dance með þýska dúetnum Milky Chance úr sæti 14 og alla leið upp í annað sæti. Sólstafir eiga nýtt lag á listanum en lag þeirra Ótta fer beint í 7.sæti á listanum. Lagið er tekið af plötunni Ótta sem er nýkomin út.
Tvö ný lög komust aftur á listann eftir að hafa dottið út í síðustu viku en það eru lögin Best Friend með Foster the People og Dangerous með hljómsveitinni Big Data.
Að sjálfsögðu eru það hlustendur X977 sem velja listann með því að taka þátt í Hlustendaráði X977 en skráning í hlustendaráðið fer fram á heimasíðu X-ins.
Hægt er að skoða listann í heild sinni hér.