City komst á blað með jafntefli | Sjáðu mörkin Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. september 2014 10:54 Agüero skoraði mark City úr víti. vísir/getty
Manchester City og Roma gerðu 1-1 jafntefli í E-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld. City er þar með komið með eitt stig í riðlinum eftir tvær umferðr en Roma er með fjögur. City komst yfir með marki Sergio Agüero úr vítaspyrnu strax á fjórðu mínútu en hann hafði fengið vítið sjálfur eftir brot Maicon. Maicon, sem lék áður með City, var svo hársbreidd frá því að jafna metin aðeins mínútu síðar er hann þrumaði knettinum framhjá Joe Hart í marki heimamanna og í slá. Gervinho komst svo í gott færi stuttu síðar en það var hinn 38 ára gamli Francesco Totti sem tókst að koma Rómverjum á blað í leiknum. Það gerði hann með laglegri vippu á 23. mínútu eftir stungusendingu Radja Nainggolan. Roma hélt áfram að sækja en Hart var vel á verði í marki Englendinganna. En eftir því sem leið á síðari hálfleikinn komust City-menn betur inn í leikinn en hvorugu liðinu tókst þó að skora sigumarkið. Fyrr í dag vann Bayern München 1-0 sigur á CSKA Moskvu í sama riðli. Bæjarar eru með fullt hús stiga í E-riðli en Rússarnir eru enn án stiga.Sergio Agüero kom Manchester City yfir úr vítaspyrnu á 4. mínútu: Francesco Totti skoraði fyrir Roma á 23. mínútu:
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Leik lokið: KR - Vestri 2-2 | Vestri jafnaði tvisvar í vesturbænum Íslenski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Leik lokið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Í beinni: Man. City - Arsenal | Risaleikur í enska Enski boltinn Fleiri fréttir Leik lokið: KR - Vestri 2-2 | Vestri jafnaði tvisvar í vesturbænum Leik lokið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Leik lokið: Breiðablik - Þór/KA 6-1 | Blikar skoruðu sex og eru áfram á toppnum Í beinni: Man. City - Arsenal | Risaleikur í enska Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli Tveir varnarmenn KR meiddust á æfingu á Starhaga Kristall áfram í stuði og lagði upp mark Hólmbert með tvö mörk í fyrstu tveimur leikjunum fyrir nýja liðið Lagði upp mark tveimur mínútum eftir að hann kom inn á Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Bellingham kallaði dómarann skíthæl Gerðu grín að Mourinho: Sá grenjandi „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Sjá meira