Það má kannski segja að Halldór Orri hafi valið sér „rangt“ tímabil til að fara í atvinnumennsku, en hann spilaði með Stjörnunni allan sinn feril og á stóran þátt í því að liðið er á þeim stalli sem það er í dag.
„Það var bæði rosalega gaman að horfa á þetta og svolítið erfitt,“ viðurkennir Halldór Orri sem var með annan Stjörnumann sem spilar í Svíþjóð, GuðjónBaldvinsson, í heimsókn hjá sér þegar Vísir heyrði í honum hljóðið.
Halldóri Orra hafði lengi langað að spreyta sig í atvinnumennsku, en Stjarnan stóð t.a.m. í vegi fyrir honum í byrjun árs 2012 þegar norska félagið Sandnes lagði fram kauptilboð í kantmanninn öfluga.
Hann fékk aftur tækifæri í vor þegar sænska félagið Falkenbergs bauð honum eins árs samning sem hann þáði. Þar hafa hlutirnir ekki gengið að óskum fyrir Halldór Orra.
„Þetta er búið að vera frekar skrítið tímabil. Ég var að spila á fullu áður en hlé var gert á deildinni og mér gekk vel. Ég var að leggja upp mörk og spilaði sjö leiki í röð. Svo eftir pásana var það bara búið. Ég hef varla verið í hóp síðan þá. Þetta er alveg fáránlegt,“ segir Halldór Orri við Vísi.

Halldór Orri kom seint til liðsins, aðeins tveimur vikum fyrir mót, og finnst honum að þjálfarinn, Henrik „Henke“Larsson, goðsögn í lifanda lífi hjá sænskum knattspyrnuunnendum, hafi verið búinn að velja sitt lið á þeim tímapunkti.
„Ég fæ fyrst tækifæri þegar kantmaðurinn sem er á undan mér meiðist og þá nýtti ég sénsinn vel. Ég lagði upp nokkur mörk og við fórum að vinna leiki og safna stigum,“ segir Halldór Orri, en eftir erfiða byrjun vann Falkenbergs tvo leiki og gerði fimm jafntefli í þeim ellefu leikjum sem hann spilaði.
„Þegar þessi leikmaður jafnaði sig af meiðslunum fór Larsson að setja hann inn á fyrir mig í nokkrum leikjum og svo fór hann aftur í byrjunarliðið. Ég hef varla komist í hóp síðan.“
Þegar Vísir ræddi við Halldór Orra í vor eftir undirskriftina kvaðst hann eðlilega spenntur fyrir því að vinna undir stjórn Henrik Larssons, enda um að ræða einn albesta knattspyrnumann Norðurlanda síðustu áratugi.
„Það er mjög heillandi að reyna að læra eitthvað af honum. Hann er náttúrulega frábær leikmaður sem spilaði með sumum af bestu liðum Evrópu,“ sagði Halldór þá.

Garðbæingurinn hefur orðið fyrir ákveðnum vonbrigðum með Larsson. Ekki nóg með komast varla í hópinn hjá Falkenbergs þá gefur sænska goðsögnin lítið af sér þegar Halldór Orri reynir að ræða við hann um stöðu súna.
„Ég talaði um þetta við hann fyrst þegar ég var búinn að spila og datt svo úr liðinu. Þá sagði hann mér að honum finndist ég þreyttur. Það skildi ég nú ekki. Ég var búinn að hlaupa þarna manna mest í leikjunum á undan og er í efstu tveimur sætunum í öllum hlaupaprófum hjá liðinu. Þegar hann tók mig úr liðinu töpuðum við fimm leikjum í röð og ég fékk ekki mínútu,“ segir Halldór Orri og svörin frá Larsson eru svipað slök þessa dagana.
„Þetta er búið að vera algjört djók seinni hluta tímabilsins. Ég hef eitthvað reynt að tala við hann, en hann segir að ég þurfi að skora fleiri mörk á æfingum og sýna mig meira. Ég spilaði svo varaliðsleik á dögunum þar sem ég lagði upp mark og var maður leiksins. Það var ekki nóg; ég var samt ekki í hóp eftir það.“
„Hann er alveg fínn þjálfari og æfingarnar eru oft ágætar, en mannleg samskipti eru ekki hans sterkasta hlið. Allavega ekki af minni reynslu að dæma,“ segir Halldór Orri.

Til allrar lukku fyrir Halldór Orra gerði hann aðeins eins árs samning og er því laus frá Falkenbergs þegar tímabilinu lýkur að þremur umferðum liðnum.
„Ég er mjög feginn svona eftir á að hafa ekki gert lengri samning. Ég ætla ekki að vera hérna áfram. Ekki með þennan þjálfara,“ segir hann.
„Það eru samt þrír leikir eftir og við erum í fallbaráttu. Maður er ekkert búinn að gefast upp. Ég læt ekki hanka mig á því að standa mig ekki eins og atvinnumaður. Ég held mér í topp formi hérna úti en það er sama hvað maður gerir, það breytir engu.“

„Það er mjög freistandi að koma heim og taka þátt í þessu ævintýri í Garðabænum. Það getur alveg vel verið að ég fari aftur í Stjörnuna, en það er ekkert ákveðið,“ segir Halldór Orri, en þýðir þá ekkert fyrir önnur félög einu sinni að hringja?
„Ég veit það ekki,“ segir hann og hlær. „Ég myndi alltaf byrja á því að tala við Stjörnuna. Ég hef ekkert heyrt í mönnum þar núna, en ég býst við að gera það þegar ég kem heim eftir tímabilið hérna úti,“ segir Halldór Orri Björnsson.