Hlynur sá fimmti besti í Svíþjóð Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. október 2014 12:30 Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Bæringsson. vísir/valli
Hlynur Bæringsson, leikmaður Sundsvall Dragons og íslenska landsliðsins í körfubolta, er besti Íslendingurinn sem spilar í sænsku úrvalsdeildinni og sá fimmti besti af öllum í deildinni. Sænski körfuboltavefurinn Basketsvergie.se stendur fyrir kosningu á 100 bestu leikmönnum deildarinnar á hverju ári og eru úrslitin birt þegar deildin hefst, en fyrstu leikirnir fara fram í kvöld. Fjöldi sérfræðinga tekur þátt í kjörinu og gefur hver og einn leikmönnunum í úrvalsdeildinni einkunn frá 1-10. Meðaltalið er svo reiknað til að finna út þá 100 bestu. Hlynur er með 8,89 í meðaleinkunn í fimmta sæti, einu sæti fyrir ofan samherja sinn Jakob Örn Sigurðarson (8,67) sem var í þriðja sæti í kosningunni í fyrra og efstur árið þar áður. Hlynur var í níunda sæti í fyrra og sjöunda sæti fyrir tímabilið 2012, en hann þótti spila frábærlega fyrir Drekana á síðasta tímabili.Haukur Helgi Pálsson.vísir/vilhelmÍsland á annan leikmann á topp 20 því Haukur Helgi Pálsson, sem hefur nú sína fyrstu leiktíð í Svíþjóð með Sundsvall Dragons, er talinn 19. besti leikmaður deildarinnar. Hann fékk 7,56 í meðaleinkunn. Haukur Helgi gekk í raðir LF Basket fyrir tímabilið en þjálfari þess er PeterÖqvist, fyrrverandi þjálfari Sundsvall Dragons og íslenska landsliðsins. Hinir drekarnir tveir; Ægir Þór Steinarsson og RagnarNathanaelsson, eru einnig á listanum. Ægir er í 46. sæti með 6,22 í meðaleinunn og risinn Ragnar með 5,11 í 66. sæti, en hann er að hefja sitt fyrsta ár í atvinnumennsku. Sundsvall Dragons hefur leik í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld líkt og LF Basket. Drekarnir heimsækja Jämtland Basket en LF Basket fær Umeå BSKT í heimsókn.Einkunnir Íslendinganna: 5. Hlynur Bæringsson, Sundsvall Dragons 8,89 6. Jakob Örn Sigurðarson, Sundsvall Dragons 8,67 19. Haukur Helgi Pálsson, LF Basket 7,56 46. Ægir Þór Steinarsson, Sundsvall Dragons 6,22 66. Ragnar Nathanaelsson, Sundsvall Dragons 5,11
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira