Handbolti

Barcelona marði Benidorm

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Barcelona gerði það sem þurfti
Barcelona gerði það sem þurfti mynd/barcelona
Stórlið Barcelona marði Benidorm 28-25 í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag eftir að hafa verið undir lengi vel í leiknum.

Benidorm var sex mörkum yfir í hálfleik 16-10 en Barcelona vann muninn upp hægt og örugglega í seinni hálfleik og var komið yfir þegar tíu mínútur voru eftir og var sterkara á spennandi endasprettinum.

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 3 mörk fyrir Barcelona í leiknum en Nikola Karabatic og Kiril Lazarov voru markahæstir með 6 mörk hvor. Victor Tomas skoraði 5.

Barcelona er á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir átta umferðir. Benidorm er í 6. sæti með 8 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×