Meira um rokkstjörnur því nú hefur Metallica trommarinn Lars Ulrich sagt að Michael Eavis, aðal skipuleggjandi Glastonbury hátíðarinnar sé stærsta rokkstjarna Englands. Þessi orð lét hann falla þegar að Ulrich veitti Eavis viðurkenningu frá tónlistariðnaðinum í gærkvöldi. En auk Ulrich voru Paul McCartney, meðlimir Coldplay og fleiri sem töluðu vel um Eavis í gær.
Í gær fylltist netið af fréttum þess efnis nýtt mixtape frá Kurt Cobain væri komið fram en síðar kom í ljóst að þetta tape hefur í umferð í mörg ár. Nú hefur fyrrum kærasta Kurt Cobain stigið fram og sagt að þetta Kurt hafi gert þetta mixtape árið 1987. Þá sagði hún einnig að hann hafi trúlega verið skakkur þegar að hann bjó það til, enda hlustaði hann sjálfur á efnið undir áhrifum kannabis eða sýru að sögn þessarar fyrrum kærustu hans.

Iceland Airwaves hátíðin hefst með látum á morgun og gestir hátíðarinnar bíða væntanlega í ofvæni eftir að sjá tónleika með mörgum af mest spennandi hljómsveitum heims um þessar mundir. Hátíðin varð engu að síður fyrir áfalli þegar að breska hljómsveitin Jungle tilkynnti að hún muni ekki koma fram á hátíðinni í ár eins og fyrirhugað var. Forsvarsmenn Iceland Airwaves brugðust hinsvegar skjótt við og fengu Retro Stefson til að leysa Jungle af hólmi.
Púlsinn minnir svo að lokum á þáttinn Saga Rokksins en fjórði þáttur verður endurfluttur á X977 í kvöld klukkan 22:00. Í þættinum er m.a. farið yfir feril Jimi Hendrix og Janis Joplin svo fátt eitt sé nefnt. En Saga Rokksins er á dagskrá alla sunnudaga frá 18-20 á X977 og þátturinn er svo endurfluttur á þriðjudagskvöldum frá 22-00.