Handbolti

Tandri Már með flottan leik í sigri í Lundi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tandri Már Konráðsson.
Tandri Már Konráðsson. Vísir/Vilhelm
Tandri Már Konráðsson átti fínan leik með Ricoh í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld og var markahæstur í góðum útisigri.

Ricoh vann fjögurra marka sigur á H 43 Lund, 27-23, eftir að hafa verið staðan var jöfn í hálfleik, 12-12.

Tandri Már skoraði 6 mörk úr 10 skotum og átti einnig þrjár stoðsendingar á liðsfélaga sína.

Ricoh HK er nú í fjórða neðsta sæti deildarinnar en liðið var búið að tapa tveimur leikjum í röð fyrir sigurinn í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×