Handbolti

Stórleikur Snorra Steins dugði ekki til

Snorri Steinn í landsleik.
Snorri Steinn í landsleik. vísir/vilhelm
Enn einn stórleikurinn hjá Snorra Steini Guðjónssyni dugði ekki til fyrir Sélestat í franska boltanum í kvöld.

Snorri lék á als oddi í kvöld og skoraði níu mörk en liðið tapaði samt stórt, 30-23, fyrir Nantes.

Það er mikið um meiðsli í herbúðum Sélestat og fimm leikmenn fjarverandi í kvöld. Liðið má illa við slíku.

Sélestat er eftir sem áður í þriðja neðsta sæti frönsku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×