Bale klár í slaginn gegn Bayern Tómas Þór Þórðarson skrifar 29. apríl 2014 07:30 Cristiano Ronaldo er klár líkt og Bale. Vísir/Getty
Stórveldin Bayern München og Real Madrid mætast í seinni leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld á Allianz-vellinum í München. Real er 1-0 yfir eftir fyrri leikinn en eina mark leiksins skoraði Frakkinn KarimBenzema. Varnarmúr Real reyndist Bæjurum erfiður fyrir viku en Carlo Ancelotti teiknaði upp skyndisóknalistaverk sem virkaði mjög vel og má fastlega búast við að Real-menn spili svipaðan leik í kvöld. Munurinn er þó að tveir af bestu knattspyrnumönnum heims, CristianoRonaldo og Gareth Bale, verða líklega báðir í byrjunarliðinu en Bale er allur að ná sér af veikindum sem hafa hrjáð hann undanfarna daga. Ancelotti staðfesti á blaðamannafundi í gær að hann yrði klár í slaginn. Bale var ekki í byrjunarliðinu í fyrri leiknum heldur kom hann inn á fyrir Ronaldo þegar 15 mínútur voru eftir. Það mun gera mikið fyrir Real og gera Bayern erfiðara um vik ef þeir byrja báðir í skyndisóknaruppleggi Ancelottis. „Hlutirnir verða ekki auðveldari fyrir okkur ef þeir byrja báðir leikinn,“ sagði ArjenRobben, framherji Bæjara, á blaðamannafundi í gær. „Það kom okkur á óvart hversu varnarsinnaðir Real-menn voru í fyrri leiknum. Við sjálfir verðum að einbeita okkur að því að spila sóknarleik og skora mörk. En við megum ekki gleyma okkur í skyndisóknunum þeirra.“ Leikurinn hefst klukkan 18.45 og er í beinni á Stöð 2 Sport.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Svona var blaðamannafundur Arnars Fótbolti Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Enski boltinn Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Fótbolti Mál Alberts truflar landsliðið ekki Fótbolti Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Fótbolti Foden í stuði gegn Dortmund Fótbolti Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport Davíð Smári tekur við Njarðvík Íslenski boltinn „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Böl Börsunga í Belgíu Foden í stuði gegn Dortmund Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Nik fær Lindu Líf til Kristianstad Sandra María skoraði í svekkjandi leik Emelía með þrennu gegn FCK Óvænt úrslit í Meistaradeildinni „Mér finnst þetta ekki leiðinlegur fótbolti“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Dældi fyrri afrekum inn á Instagram eftir vonbrigðin Valdi Isak en ekki Gyökeres í fyrsta landsliðshópinn sinn Leiðir Breiðabliks og Damir skilja Mál Alberts truflar landsliðið ekki Stuðningsmenn Bröndby enn á ný í vandræðum Vonar að Jóhann og Hörður gefi jafn mikið af sér og Aron Orri Steinn lengra frá því að ná þessum leikjum en þeim í síðasta glugga Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Svona var blaðamannafundur Arnars Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Ánægð með að mæta Íslandi „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fékk faðmlag frá konu Diogo Jota í miðju maraþoni Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Sjáðu sigurmark Liverpool á móti Real Madrid og mörkin hjá Arsenal í Prag „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Ógnaði leikmanni Tottenham með byssu út á götu Þurfti að kaupa nýjan iPhone fyrir alla í liðinu Sjá meira