Golf

Fór fyrsta hringinn í barnavagninum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ragnar Már á Strandavelli í gær en þá bætti hann vallarmetið með því að koma í hús á 62 höggum.
Ragnar Már á Strandavelli í gær en þá bætti hann vallarmetið með því að koma í hús á 62 höggum. mynd/GSÍ
„Það koma dagar þar sem maður dettur í „zone-ið“. Þá vill allt ganga upp hjá manni,“ sagði Ragnar Már Garðarsson, kylfingur úr GKG, við Fréttablaðið í gær eftir að hann tryggði sér glæstan sigur á öðru móti sumarsins á Eimskipsmótaröðinni en það fór fram á Hellu í gær.

Aðstæður voru erfiðar á Hellu um helgina og kylfingar náðu ekki sínu besta fram fyrstu tvo keppnisdagana. Besti dagurinn var á lokadeginum í gær og þá hrökk Ragnar Már í gírinn. Hann spilaði á 62 höggum, átta undir pari vallarins, og bætti vallarmet Ólafs Björns Loftssonar um eitt högg. Hann fékk alls níu fugla en hringurinn dugði honum til að sigra á mótinu með tveggja högga forystu á Gísla Sveinbergsson, GK, sem varð annar.

„Ég tók bara eina holu í einu og spilaði hana eins vel og ég gat,“ sagði hinn hógværi Ragnar Már en hann er á nítjánda aldursári. „Ég var að slá mjög vel, bæði hélt mér á braut og setti nálægt pinna í innáhögginu. Púttin gengu líka vel og þá komu fuglarnir,“ segir hann en Ragnar vann einnig fyrsta mót ársins um síðustu helgi, einnig eftir öflugan lokahring.

Hann segist hafa unnið mikið í því að styrkja andlega þáttinn í sínu spili. „Ég reyni að vera mjög þolinmóður því það er helsti áhættuþátturinn. Ég hef unnið í þessu með þjálfara mínum og það hefur hjálpað til,“ segir Ragnar.

Hann segir að árangurinn hafi komið nokkuð á óvart. „Markmiðin voru bara að vera ofarlega í mótunum og gera mitt besta. Hitt kom bara að sjálfu sér og ég vona bara að ég nái að halda mínu striki.“

Ragnar er þrátt fyrir ungan aldur kominn í háskólanám í Bandaríkjunum en hann hélt utan síðasta haust eftir að hafa klárað verslunarpróf frá VÍ. „Það gekk mjög vel úti,“ segir hann. „Námið gekk vel og golfið var upp og niður, eins og það vill oft vera. En liðinu mínu gekk vel og skólinn náði sínum besta árangri í tíu ár.

Ragnar þekkir vel til á Hellu en faðir hans er frá Hvolsvelli og fór oft með hann á þennan völl. „Ég fór minn fyrsta golfhring hér en þá var ég reyndar í barnavagni,“ segir Ragnar í léttum dúr. „Svo spilaði ég mikið hér sem krakki og þykir því vænt um að hafa bætt vallarmetið. Það var mjög skemmtilegt.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×