„Ég ætla að endurflytja gjörninginn Manntalið sem ég var með á 17. júní, leiðréttan og endurbættan.
Hann byggist á upptalningu á seyðfirskum viðurnefnum, tæplega 500 talsins,“ segir Gunnhildur Hauksdóttir myndlistarkona sem kemur fram í Hafnargarðinum á Seyðifirði á morgun klukkan 15 á Fjallkonuhátíð.
Hún segir nöfnunum hafa verið safnað af öðrum gegnum tíðina og sjálf hafi hún rætt við smiði og fleiri stéttir þar sem einkahúmor er í gangi og bætt í safnið.
„Svo eru mér alltaf að berast ábendingar og ný nöfn. Þetta er ekta þjóðfræðistúdía.“
Fjallkonuhátíðin er haldin til að minnast þess að skartbúin kona frá víkingaöld fannst uppi í heiði fyrir norðan Seyðisfjörð fyrir tíu árum.
Hátíðin tengist sumarsýningu menningarmiðstöðvarinnar Skaftfells, Ró Ró og flyst í bakgarð Skaftfells eftir gjörninginn sem mun bergmála í fjöllunum. En Gunnhildur segir hægt að hlusta á upptalninguna á lágum nótum allan sólarhringinn. „Ég smíðaði lítið svið og röddin mín hljómar úr hátalara, þar er stóll, þannig að hver sem er getur sest og hlustað.“
Viðurnefni Seyðfirðinga lesin
