„Stundum hugsaði ég: Í hvað ertu kominn, Sigmundur?“ Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 13. október 2014 13:00 Sigmundur brýtur bókina upp með ýmsu smáefni. vísir/ernir „
Það var leitað til mín úr sóknarnefndinni og ég spurður hvort ég væri tilbúinn að taka þetta verkefni að mér. Þetta var ákveðin áskorun sem ég skoraðist ekki undan. Það er mikið keppnisfólk þarna í söfnuðinum sem hefur hlúð geysilega vel að sögu sóknarinnar,“ segir Sigmundur Ó. Steinarsson rithöfundur. Hann á heiðurinn af bókinni Grafarvogssókn 25 ára sem kom út fyrir stuttu en í henni er sagt frá umfangsmiklu starfi Grafarvogssafnaðar, langstærsta safnaðar landsins. Það tók Sigmund átta til níu mánuði að vinna bókina en hann hefur skrifað sögubækur um íþróttir, til dæmis 100 ára sögu Íslandsmótsins í knattspyrnu, og átti bókin að vera í svipuðum dúr.Séra Vigfús Þór tekur fyrstu skóflustunguna að Grafarvogskirkju laugardaginn 18. maí árið 1991.„Þetta er ekki skýrsla eða langlokur. Þetta er bók fyrir fólk um fólk. Þetta er öðruvísi kirkjubók eins og margir hafa sagt,“ segir Sigmundur. „Þetta var mikill eltingarleikur við myndir og efni. Ég er mikill tarnamaður og vann geysilega mikið sumar vikurnar og safnaði efni og settist svo niður við skriftir. Ég vildi koma þessu þannig frá mér að allir yrðu sáttir,“ bætir hann við. Hann er stoltur af bókinni.Fyrsta guðsþjónustan í aðalsal Grafarvogskirkju sunnudaginn 5. júní árið 1994.„Ég er geysilega ánægður með bókina. Hraðinn í vinnslunni var svona mikill því ég sá hana alltaf fyrir mér. Ég er vanur blaðamennsku og ég segi að við blaðamenn séum bestu sagnfræðingarnir enda erum við sagnfræðingar, þótt við séum ekki menntaðir sem slíkir. Stundum hugsaði ég: Í hvað ertu kominn, Sigmundur? Þá bara tvíefldist ég enda ákvað ég að ljúka verkefninu þegar ég tók það að mér. Ég sagði í gríni að ég væri stundum kallaður séra Sigmundur en ég ber einnig gælunafnið Bubbi. Þannig að ég yrði kallaður Bubbi biskup ef ég myndi ljúka þessu verkefni,“ segir Sigmundur og hlær. Hann naut þess að taka viðtöl við safnaðarmeðlimi Grafarvogssóknar.Hugleikir barnanna í Grafarvogi hafa alltaf vakið mikla athygli og skemmtun á aðventunni í Grafarvogskirkju.„Ég kynntist söfnuði sem stendur vel saman. Þarna er unnið mjög öflugt starf. Kórarnir hafa verið mjög öflugir og góðir og safnaðarfélagið vinnur alveg ótrúlegt starf í að safna fyrir hinum ýmsu munum. Safnaðarmeðlimir smyrja einnig vel þegar veislur eru og annað og ég sagði einu sinni að þegar góðgætið væri borið fram væri það eiginlega munnsöfnuður,“ segir Sigmundur glaður í bragði. „Aðalatriðið er að sóknarbörnin séu ánægð með bókina. Þá er ég ánægður. Og ég er ánægður því ég heyrði að þau kynnu vel að meta hana.“Séra Vigfús Þór Árnason, sóknarprestur og Vilhjálmur Árni Þráinsson, sem hann fermdi 21. apríl í ár. Vilhjálmur Árni var fyrsta barnið sem var skírt í Grafarvogskirkju eftir að hún var vígð.Atli Ísaksson kemur verki Leifs Breiðfjörð fyrir í kirkjunni en glerlistaverk Leifs er jafnframt altaristafla kirkjunnar.Hörður Bragason stjórnar kór sínum í Veróna.
Menning Mest lesið Eignuðust stúlku með hjálp staðgöngumóður Lífið Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Bíó og sjónvarp „Auðvitað kom heilmikið rót á mig eftir þetta“ Lífið Fréttatía vikunnar: Þorrinn, gervigreind og háloftin Lífið Segir neytendur rænda við skókaup og bendir þeim á mikilvægan límmiða Lífið Þurfti að gegna fjölmörgum hlutverkum samtímis sem aðstandandi Lífið Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Lífið „Ósmekklegu plastblómin“ ekki frá forsetanum heldur RÚV Lífið Fjölgar í „költinu“ hjá Kötu Odds og Þorgerði Lífið Páll Óskar féll í yfirlið og þríkjálkabrotnaði Lífið Fleiri fréttir Hryllingsleikrit um árið án sumars en þó ekki 2024 Margar milljónir í menninguna Halli með nýtt hlaðvarp: Getur loksins verið í augnhæð með fólki Skiluðu tillögum um uppbyggingu Jónasarstofu í Öxnadal Fullt út úr dyrum á sjóðheitri ljósmyndasýningu Ætla að halda Lífskviðuna þrátt fyrir andlát Ásgeirs í nótt Katrín dustar rykið af visku sinni Anna Rós hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör Létu sig ekki vanta á frumsýningu Ungfrú Íslands Bókamarkaðurinn færir sig um set Troðfullt hús og standandi lófaklapp „Persónan Elmar er alls ekki Helgi“ Skrumskæld mynd af Helga Skúla í Vigdísarþáttum Ætlar aldrei aftur til Tenerife: „Þetta er hræðilegur staður“ Metsölulisti bókaútgefenda sé „ómarktækur“ Þetta voru mest seldu bækur ársins 2024 Af hverju er þessi kona á öllum auglýsingaskiltum? Sjá meira