Maðurinn sem hataði börn - Þórarinn Leifsson
„Þetta er svona svipað og Karlar sem hata konur. Meiriháttar sterkt og fínt. Mann langar að vita af hverju.“
„Þetta er svo neikvætt og félagslega óvinsælt að maður verður eiginlega að fá að vita af hverju maðurinn hataði börn.“
„Þetta er alveg skothelt, menn eiga ekki að hata börn og þar sem hornin eru rekin í rétttrúnaðinn, þar er dínamík.“
2. sæti
Ástarmeistarinn - Oddný Eir Ævarsdóttir
„Hljómar alveg spennandi. Er þetta eitthvað sadó/masó eða er þetta um hið upphafna platóníska? Maður verður að finna út úr því.“
„Fullkominn titill. Lævís eins og léleg auglýsing sem vekur samt forvitni manns. Svo er hann líka pínu sexí.“
„Hefur yfir sér yfirskilvitlegan blæ sem gerir mann forvitinn.“
3. sæti
Drápa - Gerður Kristný
„Frábært nafn á ljóðaflokki, eins konar nútíma drápu, sem fjallar um dráp.“
„Sterkur titill, hrár og töff. Einn af þessum sem fær mann til að hugsa: Hvers vegna var hann ekki nýttur fyrr?“
„Drepa, drap, drápum, drepið. Fullkomin titill á hryllingsljóðabók. Gerður er klár.“

Litlu dauðarnir - Stefán Máni
„Prentvillupúkinn hans hefur ekki verið í sambandi þegar hann klambraði þessu saman. Snara, Stefán, Snara!“
„Æ, hann hefur svo oft verið með betri titla, þetta þýðir ekki neitt og virkar ekki, a.m.k. ekki fyrir mig.“
„Fleirtala fer dauðanum afar illa.“
2. sæti
MMM - Marta María Jónasdóttir
„Matreiðslubók eftir Mörtu Maríu, sem svo reyndar er Jónasdóttir. Hefði verið fullkomið ef hún væri Magnúsdóttir.“
„Mjög fyrirsjáanlegur og einstaklega óþjáll titill á matreiðslubók. Heyrðu, áttu nokkuð bókina þarna mmm?“
3. sæti
Rogastanz - Ingibjörg Reynisdóttir
„Ekki á vetur zetandi.“
„Zetan? Í alvöru? Er það ekki dálítið uppskrúfað árið 2014?“

Nokkrir titlar hlutu atkvæði bæði sem besti og versti titill – sitt sýnist hverjum.
Gæðakonur - Steinunn Sigurðardóttir
Besti: „Nett vísun í Jónas Hallgrímsson sem segir manni að ekki séu konur bókarinnar endilega mjög góðar konur.“
Versti: „Einhvern veginn eins og hann eigi að vera hnyttinn en nái því ekki og sé bara banal.“
Kamp Knox - Arnaldur Indriðason
Besti: „Þessi steinliggur og er með hans betri. Braggahverfið vekur ávallt upp forvitni og alveg einstaklega góður á glæpasögu.“
Versti: „Undarlega óþjált af svo stuttum titli að vera, einhvers staðar á milli Camp Knox og Kamp Nox.“
Englaryk - Guðrún Eva Mínervudóttir
Besti: „Titill að hætti Guðrúnar Evu, fallegt orð á yfirborðinu en vekur hugrenningartengsl við myrkan óhugnað.“
Versti: „Er bókin um eiturlyf, eða hvað?“
Einnig nefndar
Fjölmargar bækur fengu atkvæði þótt þær næðu ekki inn á topp þrjá og voru ýmis komment álitsgjafa óborganleg.
Versti titill
Vestfirskir sjómenn, í blíðu og stríðu - Hallgrímur Sveinsson og Bjarni G. Einarsson tóku saman
„Ég sé fyrir mér hommaskip í Súgandafirði. Þetta með blíðu og stríðu er svo tengt hjónabandinu. Fyrir vikið verður titillinn hálf skringilegur.“
Besti titill
Saga Garðabæjar I-IV - Steinar J. Lúðvíksson
„Gegnsær titill sem tryggir fróðlegt innihald og langt og notalegt aðfangadagskvöld í náttbuxum með kakóbolla og konfektmola.“
Versti titill
Kynlíf – já, takk - Ragnheiði Haralds- og Eiríksdóttur
„Kynlíf; já já. Þessi titill; nei, takk. Ég hugsa bara um grænmeti.“
Besti titill
Skálmöld - Einar Kárason
„Flottur, stuttur og ótrúlega skemmtilega metalrokkaður af augljósum ástæðum, held ég.“
Mest villandi titill
Skálmöld hljóðbók!
Álitsgjafar:
Þorgeir Tryggvason textasmiður og Ljótur hálfviti
Anna Lea Friðriksdóttir bóksali
Gísli Ásgeirsson þýðandi
Magnús Teitsson prófarkalesari
Silja Aðalsteinsdóttir bómenntagúrú
Bergsteinn Sigurðsson dagskrárgerðarmaður
Margrét Gústavsdóttir ritstjóri
María Lilja Þrastardóttir blaðamaður
Jakob Bjarnar Grétarsson gagnrýnandi
Kristín Jónsdóttir þýðandi