Jón Hreggviðsson sem Halldór Laxness segir frá í Íslandsklukkunni er ein frægasta persóna íslenskra bókmennta svo þeir Kriðpleirsmenn, sem ásamt Friðgeiri eru Ragnar Ísleifur Bragason og Árni Vilhjálmsson, ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Hvernig unnu þeir verkið?
„Við fórum á söguslóðir, vettvang glæpsins samkvæmt Laxness, og skoðuðum hann. Fundum staðinn þar sem við teljum langlíklegast að þetta hafi átt sér stað og rannsökuðum hann svona eins og í góðri glæpamynd,“ segir Friðgeir. „Vorum með myndatökuvélar með okkur og útgangspunkturinn í verkinu er kvikmyndagerðarmenn sem eru að búa til kvikmynd um glæpinn og líf Jóns Hreggviðssonar en ná ekki að klára hana. Leiksýningin er þeirra tilraun til að brúa bilið og fylla upp í eyðurnar í myndinni.“
Leiksýningin fer fram í bíói og stór hluti sýningarinnar er í formi kvikmyndarinnar sem persónurnar eru með í bígerð. Það var Janus Bragi Jakobsson sem sá um kvikmyndagerðina, leikmyndin er eftir Tinnu Ottesen en verkið eftir Bjarna Jónsson. Persónurnar eru þær sömu og í tveimur fyrri sýningum leikhópsins, hverjir eru það?
„Þetta eru þrír karlar sem búa í hliðstæðum veruleika við okkar, þannig að þeirra líf þróast samhliða okkar lífi,“ útskýrir Friðgeir. „Þeir eru svolítið líkir okkur að því leyti að þeir eru alltaf að reyna að slá í gegn, verða hetjur og hasla sér völl með tilheyrandi vinsældum. Þeir sjá fram á að með því að leysa þetta fræga sakamál geti þeir loksins komist til virðingar bæði í fræða- og listasamfélaginu og orðið ríkir og frægir.“
Friðgeir hefur oftast skrifað verk sín sjálfur, hvernig kom Bjarni í spilið?
„Bjarni kom að dramatúrgíu og textavinnu í báðum fyrri verkum okkar, Blokkinni og Tiny Guy. Hann er búinn að vera að vinna með þennan efnivið í nokkur ár og viða að sér föngum um Jón Hreggviðsson. Á einhverjum tímapunkti komst hann að þeirri niðurstöðu að það væri langbest að þessir kallar myndu koma sögunni til skila og við skulum segja að þeir hafi svo ríka réttlætiskennd að þeir hafi ólmir viljað taka þetta að sér.“
Sýningar fara fram í Bíói Paradís, er ekki erfitt að koma leiksýningu fyrir þar?
„Við sýnum í sal tvö og höfum með okkur alls kyns dót til að laga bíóið að leikhúsinu enda fannst okkur Bíó Paradís hinn hárrétti vettvangur til að frumsýna þetta efni.“
Frumsýningin verður klukkan 20 í kvöld, önnur sýning á morgun klukkan 18 en sú sýning fer fram á ensku, og síðan hafa verið skipulagðar fjórar sýningar í viðbót tvær næstu helgar.