Sala Toyota Crown í Evrópu hófst síðan árið 1963 er Toyota hóf sölu hans í Danmörku. Var þar um að ræða aðra kynslóð bílsins. Nú er hann af 14. kynslóð og hófst framleiðsla hans árið 2012. Toyota hóf að framleiða Crown í Ástralíu árið 1967 og í Kína á árið 2005.
Afmælisútgáfan nú mun aðeins fást í tveimur litum, Sky Blue og Bright Green og fagna margir litaglaðir því. Toyota Crown er sá bíll japanska framleiðandans sem lengst hefur verið í framleiðslu samfellt og er mjög mikilvægur bíll í framleiðslulínu Toyota.
Hann var frá upphafi framleiddur sem lúxusbíll og er það enn. Margir Íslendingar þekkja til Toyota Crown og seldist hann ágætlega hér á árum áður en hefur ekki verið í boði hérlendis í langan tíma.
