Axel Kárason tók 20 fráköst í mikilvægum sigri Tómas Þór Þórðarson skrifar 21. janúar 2015 20:00 Axel Kárason átti stórgóðan leik. vísir/daníel
Axel Kárason, landsliðsmaður í körfubolta, og félagar hans í Værlöse unnu sigur á botnliði Aalborg Vikings, 85-75, í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Værlöse er í mikilli fallbaráttu við Hoersholm, en bæði lið voru með átta stig fyrir leikinn. Víkingarnir frá Álaborg virðast ekki eiga mikla von en þeir eru enn án sigurs eftir 17 leiki á botni deildarinnar. Axel og félagar þurftu þó framlengingu til að leggja Víkingana í kvöld eftir að staðan var jöfn, 69-69, eftir venjulegan leiktíma. Salman Khan kom Værlöse í 72-69 með þriggja stiga körfu og eftir að gestirnir frá Álaborg brutu af sér í næstu sókn jók David Knudsen muninn í fimm stig með sniðskoti, 74-69. Axel Kárason gekk svo endanlega frá Álaborgarliðinu með þristi í næstu sókn. Axel var frábær í leiknum, en hann skoraði ellefu stig og tók 20 fráköst á þeim 42 mínútum sem hann spilaði. Með sigrinum náði liðið tveggja stiga forystu á Hoersholm í fallbaráttunni en það á leik til góða.Craig Pedersen og Arnar Guðjónsson fögnuðu sigri í kvöld.vísir/vilhelmSvendborg Rabbits, liðið sem landsliðsþjálfararnir Craig Pedersen og Arnar Guðjónsson þjálfa, vann svo stórsigur á Randers Cimbria, 96-60, eftir að vera yfir í hálfleik, 56-24. William Paul var stigahæstur hjá Kanínunum með 18 stig og tók að auki 10 fráköst, en Marinus Mouboe skoraði 14 stig og tók 11 fráköst. Svendborg komst með sigrinum upp í þriðja sæti deildarinnar með 24 stig, en það er búið að vinna tólf leiki og tapa sex. Bakken Bears og Horsens eru á toppnum með 28 stig.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira