Handbolti

Kolding heldur sínu striki

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Aron Kristjánsson
Aron Kristjánsson vísir/eva björk
Kolding lagði Skjern 31-30 í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari er þjálfari Kolding.

Kolding var 19-17 yfir í hálfleik en liðið náði mest sex marka forystu um miðbik seinni hálfleiks sem Skjern náði að vinna upp.

Gríðarleg spenna var í leiknum síðustu mínúturnar en Kolding skoraði sigurmarkið þegar 48 sekúndur voru til leiksloka.

Kolding er með 37 stig á toppnum í dönsku deildinni í 20 leikjum, sjö stigum á undan Aalborg.

Bo Spellerberg og Lukas Karlsson skoruðu 7 mörk hvort fyrir Kolding en Henrik Jensen skoraði 10 mörk fyrir Skjern.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×