Körfubolti

Körfuboltaleikur fór 2-0

Þessi lokastaða er lyginni líkust.
Þessi lokastaða er lyginni líkust.
Met var sett í körfuboltaleik hjá framhaldsskólaliðum um síðustu helgi.

Lið Bibb County vann þá 2-0 sigur á Brookwood í 32 mínútna leik. Einu stigin í leiknum komu eftir aðeins 15 sekúndur. Síðan var eins og lok hefði verið sett á körfurnar.

Þetta er lægsta skor sem hefur sést síðan annar framhaldsskólaleikur fór 2-0 árið 1977.

Þjálfarar beggja liða voru hissa á lokatölum leiksins en þetta var fjórði leikur liðanna á einni viku.

Síðast er þau mættust í nóvember fóru leikar 40-36 fyrir Brookwood. Bibb County náði því fram hefndum með þessum sæta 2-0 sigri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×