Handbolti

Arna Sif vann Rut bæði í mörkum og stigum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Arna Sif Pálsdóttir.
Arna Sif Pálsdóttir. Vísir/Ernir
Íslensku landsliðskonurnar og gömlu liðsfélagarnir úr HK, Arna Sif Pálsdóttir og Rut Jónsdóttir, mættust í kvöld með liðum sínum í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Arna Sif Pálsdóttir og félagar hennar í SK Århus-liðinu unnu þá átta marka útisigur á Rut og félögum í Randers HK, 25-17. SK Århus var átta mörkum yfir í hálfleik, 15-7.

Yfirburðir SK Århus komu mikið á óvart en liðið fór á kostum í bæði vörn og sókn.

Arna Sif vann Rut bæði í mörkum og stigum því Arna Sif skoraði fjögur mörk fyrir SK Århus en Rut eitt fyrir Randers. Rut nýtti eina skotið sitt og átti líka eina stoðsendingu. Arna Sif nýtti fjögur af sex skotum sínum.

SK Århus var fimm stigum og tveimur sætum neðar en Randers HK fyrir leikinn í kvöld og sigurinn var Örnu og félögum mjög mikilvægur í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni í vor.

   




Fleiri fréttir

Sjá meira


×