Handbolti

Birna fór á kostum annan leikinn í röð

Anton Ingi Leifsson skrifar
Vísir/frammyndir.123
Birna Berg Haraldsdóttir átti annan stórleikinn í röð þegar Molde rúllaði yfir Fjellhammer í norsku B-deildinni í handbolta í dag.

Molde var í banastuði í dag og þær komust meðal annars í 7-3 og 10-3. Staðan í hálfleik var svo 13-4 Molde í vil.

Veislan hjá Molde hélt áfram í síðari hálfleik, en Fjellhammer skoraði þó fleiri mörk í þeim síðari en í þeim fyrri.

Lokatölur urðu fimmtán marka sigur Molde, 28-14.

Birna fór algjörlega á kostum og skoraði átta mörk og var markahæst hjá Molde annan leikinn í röð með átta mörk.

Einar Jónsson þjálfar Molde sem situr í öðru sæti B-deildarinnar í Noregi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×