Öll ensku liðin úr leik | Sjáðu sigurmark Barcelona Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. mars 2015 15:49 Börsungar fagna marki sínu í fyrri hálfleik. Vísir/Getty
Barcelona tókst ætlunarverk sitt og sló Englandsmeistara Manchester City úr leik með 1-0 sigri á heimavelli sínum í kvöld og 3-1 samanlagt. Ivan Rakitic skoraði eina mark leiksins á 31. mínútu er hann vippaði boltanum yfir Joe Hart í marki City eftir frábæra sendingu Lionel Messi. Barcelona fór mikinn í fyrri hálfleik og voru City-menn stálheppnir að fara til búningsklefa sinna aðeins 1-0 undir. Heimamenn skutu þrívegis í markrammann í leiknum, þar af tvisvar í fyrri hálfleik. Manchester City fékk þó tækifæri til að koma sér aftur inn í leikinn er Javier Mascherano braut á Sergio Agüero um stundarfjórðungi fyrir leikslok. En Marc-Andre ter Stegen varði slaka spyrnu Agüero. Joe Hart var frábær í marki City og bjargaði því sem bjargað varð. Hann varði margsinnis afar vel, til að mynda frá Luis Suarez undir lokin en Suarez náði að fylgja skotinu eftir og skjóta í slá. Þar með er ljóst að öll ensku liðin eru úr leik í Meistaradeild Evrópu en þrjú spænsk lið eru komin áfram - Barcelona, Real Madrid og Atletico Madrid.Ivan Rakitic skoraði mark Barcelona í fyrri hálfleik:
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Sá húsið sitt brenna til kaldra kola Körfubolti Pálmi í ótímabundið leyfi Íslenski boltinn Shakhtar - Breiðablik 2-0 | Stórliðið hvíldi stjörnurnar í sigri gegn Blikum Fótbolti Erfitt að heyra hvað Orri hefur þjáðst Fótbolti Eigandi Nott.Forest ákærður fyrir tengsl við glæpagengi Sport Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Fótbolti Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? Fótbolti Fylgist spenntur með Viktori: „Þetta er með ólíkindum“ Fótbolti Njarðvík - Stjarnan | Komast meistararnir í gang? Körfubolti Hlýnun jarðar á að hafa mikil áhrif á maraþonhlaup í heimnum Sport Fleiri fréttir Sex handtökur í mótmælum fyrir leik í Evrópudeildinni Emilía skoraði annan leikinn í röð Logi á toppnum en Hákon á bekknum Shakhtar - Breiðablik 2-0 | Stórliðið hvíldi stjörnurnar í sigri gegn Blikum Ronaldo og félagar spila landsleik í sérstökum Eusébio-búningi Ólöf og Írena báðar í úrvalsliði Ivy-deildarinnar Suárez dæmdur í bann fyrir hælspark í mótherja og missir af risaleik Pálmi í ótímabundið leyfi Góður í að þekkja stórstjörnur sem börn Erfitt að heyra hvað Orri hefur þjáðst „Ég og Nik erum ágætis vinir“ „Vel gert að geta haldið áfram í svona ástandi“ Fylgist spenntur með Viktori: „Þetta er með ólíkindum“ Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Lamine Yamal sakaði menn um lygar eftir leik Mörk úr Meistaradeildinni: Sjáðu Osimhen hoppa upp fyrir Mbappé og Haaland Segir að Man United sé ekki að búa til Harlem Globetrotters-lið Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Böl Börsunga í Belgíu Foden í stuði gegn Dortmund Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Nik fær Lindu Líf til Kristianstad Sandra María skoraði í svekkjandi leik Emelía með þrennu gegn FCK Óvænt úrslit í Meistaradeildinni „Mér finnst þetta ekki leiðinlegur fótbolti“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Sjá meira