Bandaríkjamaðurinn Jordan Spieth sigraði á Valspar Chamionship sem kláraðist í gær en þetta er annar sigur hans á PGA-mótaröðinni á ferlinum og sá fjórði á atvinnumannamóti í golfi.
Lokahringurinn á Copperhead vellinum var mjög spennandi og margir kylfingar voru um hituna í toppbaráttunni en úrslit réðust ekki fyrr en á þriðju holu í bráðabana þar sem Spieth hafði betur gegn Patrick Reed og Sean O‘Hare eftir að hafa sett niður tíu metra pútt fyrir fugli.
Þeir þrír léku hringina fjóra á samtals tíu höggum undir pari en Ryan Moore, sem leiddi mótið lengst framan af, fann sig ekki á lokahringnum og endaði að lokum einn í fimmta sæti, höggi á eftir Svíanum Henrik Stenson, á átta höggum undir pari.
Sigurinn hjá Spieth var afar sætur en boltaslátturinn hjá honum var ekki upp á marga fiska á lokahringnum í gær. Hann sýndi hins vegar af hverju hann er talinn vera ein af framtíðarstjörnum PGA-mótaraðarinnar með ótrúlegum tilþrifum í kring um flatirnar sem héldu honum í toppbaráttunni og tryggði honum sigurinn að lokum.
Sigurinn færði Spieth rúmlega 130 milljónir króna í aðra hönd en á tveimur og hálfu ári hefur þessi ótrúlegi kylfingur halað inn yfir milljarði króna í verðlaunafé.
Jordan Spieth sýndi stáltaugar og sigraði á Valspar Championship

Mest lesið





„Menn vissu bara upp á sig sökina“
Körfubolti



Kulusevski missir af úrslitaleiknum gegn Man United
Enski boltinn

Úlfarnir í úrslit vestursins
Körfubolti
