Handbolti

Róbert og félagar bikarmeistarar annað árið í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Róbert og félagar urðu bikarmeistarar í dag.
Róbert og félagar urðu bikarmeistarar í dag. vísir/getty
Róbert Gunnarsson og félagar í Paris Saint-Germain urðu í dag franskir bikarmeistarar eftir sigur á Nantes í úrslitaleik.

Paris var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 14-12, og vann að lokum sex marka sigur, 32-26.

Þetta er þriðji bikarmeistaratitilinn í sögu Paris en liðið varð einnig bikarmeistari í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×