Rexach: Guardiola mun snúa aftur til Barcelona Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. maí 2015 16:30 Guardiola snýr aftur á Nývang á morgun. vísir/getty
Charly Rexach býst við að Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Bayern München, snúi einhvern daginn aftur til Barcelona. Rexach hefur gegnt flestum störfum hjá Barcelona sem til eru en hann kom til félagsins árið 1959 þegar hann var 12 ára. Rexach var leikmaður Börsunga í rúm 20 ár og síðan þjálfari og aðstoðarþjálfari liðsins en hann situr í stjórn félagsins í dag. „Hann mun snúa aftur fyrr en seinna, í hvaða hlutverki sem það verður. Guardiola er hluti af Barcelona eins og Franz Beckenbauer er hluti af Bayern München,“ sagði Rexach en Barcelona og Bayern mætast á Nývangi á morgun í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Þetta verður í fyrsta sinn sem Guardiola stýrir liði gegn Barcelona sem hann lék með í mörg ár og þjálfaði síðan með frábærum árangri á árunum 2008-2012. „Þetta verður erfitt fyrir alla hlutaðeigandi, aðallega Pep sem er að snúa aftur á æskuslóðirnar, en einnig fyrir stuðningsmennina sem dýrka og dá Pep,“ sagði Rexach sem átti hvað stærstan þátt í að fá Lionel Messi til Barcelona á sínum tíma. Guardiola á eitt ár eftir af samningi sínum við Bayern en hann hefur gert liðið að Þýskalandsmeisturum síðustu tvö ár.
Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Þýski boltinn Mest lesið Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Sport Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Enski boltinn „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Körfubolti „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Íslenski boltinn Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Enski boltinn Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Fótbolti „Sagt að mér gæti blætt út“ Sport Frank Mill er látinn Fótbolti Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins Körfubolti Fleiri fréttir Gervigreindin fór illa með mótherja Víkinga „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Frank Mill er látinn Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Natasha með slitið krossband Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Máluðu dvergana sjö í kringum fræga veggmynd af Lamine Yamal Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Mark Kolbeins svo gott sem gulltryggði sigurinn „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Orri Steinn fær portúgalska samkeppni Breiðablik og Víkingur vita hverjum þau mæta næst Rashford með sitt fyrsta mark fyrir Barcelona Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Sjáðu tvennu Sigurðar og snögg svör Víkinga Barist um undirskrift Nunez Tómas Bent seldur til Skotlands Ronaldo vill gera Greenwood aftur að liðsfélaga „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Sjá meira