Handbolti

Arnór Þór framlengir við Bergischer

Arnór Þór fagnar í leik með Bergischer.
Arnór Þór fagnar í leik með Bergischer. mynd/bergischer
Landsliðsmaðurinn Arnór Þór Gunnarsson verður í horninu hjá Bergischer næstu árin.

Hann er búinn að skrifa undir samning við félagið sem gildir til ársins 2018. Gamli samningurinn átti að renna út næsta sumar.

Arnór Þór gekk í raðir félagsins árið 2012 og hefur bætt leik sinn á hverju ári hjá félaginu.

„Ég er mjög ánægður með að hafa skrifað undir nýjan samning við félagið. Hér líður mér og fjölskyldu minni vel og gott að vita til þess að við verðum hér áfram næstu þrjú árin hið minnsta," sagði Arnór í tilkynningu frá félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×