Handbolti

Japanir vilja fá Heiner Brand

Heiner Brand.
Heiner Brand. vísir/getty
Fyrrum þjálfari þýska landsliðsins, Heiner Brand, er væntanlega á leið til Japans.

Japanir eru þegar byrjaðir að undirbúa sig fyrir Ólympíuleikana árið 2020 sem verða haldnir í Tókýó. Þeir ætla að mæta til leiks með sterkt handboltalið.

Brand yrði þó ekki þjálfari liðsins heldur íþróttastjóri og myndi hafa yfirumsjón með því að búa til samkeppnishæft lið.

„Það kemur ekki til greina að ég þjálfi liðið. Sá tími er liðinn," sagð hinn 62 ára gamli Brand.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×