Handbolti

Guif sópað úr leik

Anton Ingi Leifsson skrifar
Atli Ævar skoraði eitt mark í dag.
Atli Ævar skoraði eitt mark í dag. vísir/heimasíða
Eskilstuna Guif var sópað úr leik í úrslitakeppni sænska handboltans, en þeir töpuðu þriðja undanúrslitaleiknum gegn Alingsås, 23-18, fyrr í dag.

Alingsås var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik, en þeir skoruðu meðal annars þrjú síðustu mörkin í fyrri hálfleik. Þeir breyttu stöðunni úr 10-10 í 13-10 og þannig var staðan í hálfleik.

Þeir héldu þessu forskoti í síðari hálfleik og unnu að lokum fimm marka sigur, 23-18. Guif því úr leik, en viðureign þessa liða endar því 3-0.

Aron Rafn Eðvarðsson er markmaður Guif, en Atli Ævar Ingólfsson skoraði eitt mark. Kristján Andrésson þjálfar Guif.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×