Glamour

Biðu í röð eftir Beckham-barnafötum

Ritstjórn skrifar
Harper Seven með pabba sínum á fremsta bekk á Burberry sýningu í apríl.
Harper Seven með pabba sínum á fremsta bekk á Burberry sýningu í apríl. Getty
Fatahönnuðurinn Victoria Beckham gaf fatnað dóttur sinnar, Harper Seven, til góðgerðarmála. Valdi hún 25 dress og seldi í versluninni Mary's Living og fór allur ágóðinn af sölunni til góðgerðarsamtakanna Save The Children.

Dressin hennar Harper voru ekki af verri endanum
Voru fötin hennar Harper svo sannarlega ekki af verri endanum, enda mamma hennar mikil tískuspekúlant, en þar var meðal annars að finna föt frá Stella McCartney, Marc Jacobs, Gucci og Ralph Lauren. 

Verslunin opnaði klukkan 10 í gærmorgun og strax klukkan 6 var komin löng röð af fólki fyrir utan. Dressin voru þó langt frá því að vera gefins og kostuðu frá 250-500 pund, eða 50-100 þúsund íslenskar. 

Röðin fyrir utan verslunina


×