Lopez-tvíburarnir spila með New York liðunum næsta vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2015 21:30 Robin Lopez er hér til vinstri en Brook Lopez er til hægri. Vísir/EPA
Miðherjinn Robin Lopez ætlar yfirgefa Portland Trail Blazers og semja við New York Knicks til fjögurra ára samkvæmt fréttum bandarískra fjölmiðla í kvöld. Robin Lopez var með lausan samning hjá Portland Trail Blazers þar sem hann hefur spilað undanfarin tvö tímabil. Robin Lopez fær 54 milljónir dollara, 7,2 milljarða íslenskra króna, fyrir að loka miðjunni hjá New York Knicks liðinu til 2019. Tvíburabróðir Robin Lopez, Brook Lopez hefur framlengt samning sinn við nágranna Knicks í Brooklyn Nets þar sem hann hefur spilað allan sinn feril. Brook Lopez fær 60 milljónir dollara fyrir þrjá ár hjá Brooklyn Nets. Lopez-tvíburarnir spila því með nágrannaliðum New York borgar næstu tímabil en þeir hafa ekki spilað saman síðan að þeir voru báðir í Stanford-háskólanum frá 2006 til 2008. Phil Jackson, forseti New York Knicks, náði ekki að heilla LaMarcus Aldridge, Greg Monroe eða DeAndre Jordan sem voru allir mun eftirsóttari en umræddur Robin Lopez. Robin Lopez er 27 ára gamall og 213 sentímetrar á hæð en hann þykir mjög góður varnarmaður en lætur minna til sína taka í sókninni. Robin Lopez var með 9,6 stig, 6,7 fráköst og 1,4 varin skot að meðaltali með Portland Trail Blazers á síðustu leiktíð. Auk þess að spila með Portland Trail Blazers hefur Robin Lopez spilað með Phoenix Suns og New Orleans Hornets.
NBA Mest lesið Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira