Ótrúleg endurkoma Fjarðabyggðar gegn Fram Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. júlí 2015 19:59 Fjarðabyggð er enn í 3. sæti 1. deildar. mynd/heimasíða kff
Fjarðabyggð og Fram skildu jöfn, 3-3, í fyrsta leik kvöldsins í 1. deild karla. Fram var með unninn leik í höndunum en staðan í upphafi seinni hálfleiks var 1-3, gestunum frá Reykjavík vil en þeir voru auk þess manni fleiri. Indriði Áki Þorláksson kom Fram yfir á 8. mínútu með sínu fyrsta marki fyrir félagið. Á 31. mínútu fékk Milos Ivankovic, leikmaður Fjarðabyggðar, að líta rauða spjaldið fyrir brot á Gunnari Helga Steindórssyni og aðeins sex mínútum síðar bætti Atli Fannar Jónsson við marki fyrir Fram og staða þeirra orðin vænleg. Viktor Örn Guðmundsson minnkaði muninn með marki beint úr aukaspyrnu í uppbótartíma fyrri hálfleiks en strax í upphafi þess seinni kom Ernir Bjarnason, lánsmaður frá Breiðabliki, Fram í 1-3. En Austfirðingar gáfust ekki upp og Brynjar Jónasson minnkaði muninn í 2-3 á 77. mínútu með sínu sjöunda deildarmarki í sumar. Það var svo Andri Þór Magnússon sem tryggði heimamönnum stig þegar hann jafnaði metin í 3-3 á 83. mínútu. Fjarðabyggð er enn í 3. sæti deildarinnar, nú með 25 stig, en liðið hefur ekki unnið í þremur leikjum í röð. Fram er hins vegar í 10. sæti með aðeins 13 stig en liðið hefur ekki unnið leik í mánuð.Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolti.net.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Íslenski boltinn Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Íslenski boltinn Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Sport „Síðasti leggurinn var helvíti þungur“ Sport „Þorsteinn er allt of lengi að bregðast við“ Fótbolti Leik lokið: Svíþjóð 4 - 1 Þýskaland | Úrslitaleikur um efsta sætið Fótbolti Hvaðan koma peningarnir sem Tottenham er að eyða? Fótbolti Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Körfubolti Landslið Íslands í golfi gerði það gott á EM Sport Fleiri fréttir Njarðvík slapp með stig frá Húsavík Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Lárus Orri byrjaður að bæta við sig „Við erum að gera eitthvað rétt“ Á góðum stað fyrir mikil átök Safna stuðningsfólki í fría rútu með fljótandi veigar Shaina boðin hjartanlega velkomin aftur í Hamingjuna Sólarbann, freistingar og kokhraustir Albanir Óli Jóh skellihló að viðtali Heimis Stúkumenn ekki sammála um hvort Valsmenn geti orðið meistarar KA fékk færri athugasemdir en Crystal Palace Sjáðu Árna bjarga sjálfum sér en fá svo á sig jöfnunarmark langt utan af velli Uppgjörið: FH - Stjarnan 1-1 | Jafntefli vonbrigði fyrir alla Sjáðu Hallgrím Mar klára KR-ingana á fjórum mínútum „Ekki komnir á þann stað að geta tekið leiki og klárað þá“ Uppgjörið: KR - KA 1-2 | KA úr fallsæti „Búnir að vera á smá hrakhólum“ Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 0-0 | Hundleiðinlegt í Eyjum Hundur vildi prófa nýja gervigrasið og fór inn á völlinn í Eyjum Uppgjörið: ÍA - Fram 0-1 | Vuk heldur áfram að skora Uppgjörið: Vestri - Valur 0-2 | Valur heldur pressu á Víkingum ÍR á toppinn en fjögur rauð spjöld og allt vitlaust í lokin Allison með fyrsta markið á nýjum Hásteinsvelli Mæta Víkingum á nýlögðu gervigrasi í Eyjum Ásgeir og Hrannar heiðruðu Jota Sjáðu glæsimark Óla Vals og öll hin í Mosfellsbæ Halldór: „Þetta er kannski lægsta orku-level sem ég hef séð hjá liðinu í sumar“ Njarðvíkingar flugu á toppinn með stórsigri í Grindavík Uppgjörið: Afturelding-Breiðablik 2-2 | Meisturum Blika fataðist flugið Sjá meira