Fótbolti

Kjartan Henry skoraði í tapi Horsens

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kjartan Henry skoraði sitt fyrsta mark á tímabilinu gegn Lyngby í dag.
Kjartan Henry skoraði sitt fyrsta mark á tímabilinu gegn Lyngby í dag. vísir/daníel
Kjartan Henry Finnbogason er kominn á blað í dönsku B-deildinni en hann skoraði annað marka Horsens í 2-4 tapi gegn Lyngby í dag.

Kjartan jafnaði metin í 1-1 með marki úr vítaspyrnu á 6. mínútu en aðeins sjö mínútum síðar komst Lyngby aftur yfir.

Horsens er búið að tapa báðum leikjum sínum í B-deildinni en liðið vermir botnsæti hennar.

Kjartan gerði 11 mörk í 24 deildarleikjum á sínu fyrsta tímabili hjá Horsens.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×