Fáskrúð í Dölum áfram hjá SVFR Karl Lúðvíksson skrifar 23. ágúst 2015 13:00 Rögnvaldur Örn og Árni Friðleifs við undirskrift á nýjum samningi með formanni Veiðifélags Laxdæla, Jóhanni Hólm Ríkharðssyni.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur og Veiðifélag Laxdæla skrifuðu undir nýjan langtíma leigusamningum veiðiréttinn í Fáskrúð í Dölum. Fáskrúð hefur verið gífurlega vinsæl á meðal félagsmanna SVFR og er þetta því mikið fagnaðarefni fyrir félagsmenn. Veiðin í Fáskrúði í sumar hefur verið nokkuð góð, þó svo að laxinn hafi byrjað að ganga inn frekar seint. Á hádegi í gær var áin komin í 120 laxa og var mikið af laxi að ganga inn þegar við heyrðum í veiðimönnum sem voru þar við veiðar og var hann að sögn vel dreifður um ánna. Fáskrúð í Dölum á upptök á svokallaðri Gaflfellsheiði og fellur til sjávar um 10 km. norðan við Búðardal. Áin er um það bil 25 km. löng og vatnasviðið 32 ferkílómetrar. Helsta þveráin heitir einmitt Þverá, og er neðsti hluti hennar laxgengur. Meðalveiði áranna 1974 til og með 2008 er 230 laxar. Mest 464 laxar árið 1988, en fór niður í 96 fiska árið 1994. Um það bil 40 merktir veiðistaðir eru í ánni.
Mest lesið Stórurriði sleit sig lausann við Elliðavatn í gærkvöldi Veiði 59 laxar úr Bíldsfelli Veiði Ágætis rjúpnaveiði en skilyrðin erfið Veiði Eystri Rangá að fyllast af laxi Veiði Mýveisla hjá silungnum í Elliðavatni Veiði Mikil hrognanotkun í Elliðavatni þrátt fyrir bann Veiði Kalt við vötnin næstu daga Veiði Fréttir úr Tungufljóti Veiði Eystri Rangá komin í 1520 laxa Veiði Kýs að hnýta flugur með konum Veiði