Hlynur: Ekki vanur því að spila svona seint á kvöldin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. september 2015 21:56 Hlynur Bæringsson og Pau Gasol í leiknum í kvöld. Vísir/Valli
Hlynur Bæringsson, fyrirliði íslenska körfuboltalandsliðsins, gaf allt sitt að venju í kvöld þegar Ísland tapaði 99-73 á móti Spánverjum á Evrópumótinu í körfubolta í Berlín. „Það var rosalega gaman að fá að glíma við þessa karla. Langan hluta í leiknum þá vorum við bara yfir eða í jöfnum leik eða þangað til síðustu mínúturnar í þriðja leikhluta þegar þeir fóru framúr okkur," sagði Hlynur. Hlynur var með 8 stig og 8 fráköst í baráttunni við NBA-stjörnurnar í spænska liðinu. „Þeir voru bara með aðeins meiri orku en við og auðvitað rosa hæfileikaríkir líka. Þetta var rosa gaman og fjör en því miður varð munurinn of mikill í restina," sagði Hlynur. „Það var margt mjög jákvætt í þessu og mér fannst þetta vera góður leikur hjá okkur og þá sérstaklega framan af," sagði Hlynur. „Þetta var líka rosalega skrýtið því ég er ekki vanur því að spila svona seint á kvöldin. Það var svolítið sérstakt og líkamsklukkan var í fönki til að byrja með," sagði Hlynur en leikurinn hófst klukkan níu að staðartíma í Berlín. Íslenska liðið spilar lokaleik sinn á mótinu á móti Tyrkjum á morgun en sá leikur fer líka fram klukkan níu um kvöld. „Nú er bara einn leikur og við ætlum bara að klára þessa hátið með stæl. Klára þetta með fólkinu okkar og það verður bara gaman líka á móti Tyrkjunum á morgun," sagði Hlynur.
EM 2015 í Berlín Mest lesið Fimm ástæður þess að Ísland vinni EM Fótbolti „Auðvitað á þetta að vera svona hjá KSÍ líka“ Fótbolti Jón Daði skrifar undir hjá Selfossi Íslenski boltinn „Tilhugsunin um að spila fyrir annað félag sat bara ekki rétt í mér“ Íslenski boltinn Opnaði Instagram og sá að hún væri á leiðinni á EM í Sviss Fótbolti City úr leik eftir sjö marka spennutrylli gegn Al-Hilal Fótbolti Efaðist en lagði allt í sölurnar fyrir EM: „Mörg gleðitár“ Fótbolti „Ef þú vilt ekki vera hérna, farðu bara“ Fótbolti EM í dag: Ánægjuleg truflun og þungu fargi létt Fótbolti Svona var fundurinn fyrir fyrsta leik Íslands á EM Fótbolti Fleiri fréttir Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Sjá meira