Körfubolti

Jón Arnór með átta stig í sigri Valencia

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson á ferðinni á EM í Berlín.
Jón Arnór Stefánsson á ferðinni á EM í Berlín. Vísir/Getty
Jón Arnór Stefánsson gerði átta stig fyrir Valencia í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag en liðið hafði betur gegn Estudiantes, 81-73.

Jón spilaði í rúmlega tólf mínútur í leiknum og gerði því vel á þeim tíma sem hann var inni á vellinum.

Rafa Martínez var atkvæðamestur í liði Valencia með 21 stig. Valencia hefur unnið alla leiki sína í deildinni á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×