
Manneskjur sem við áttum aldrei að kynnast
Hælisleitendum er almennt haldið utan við samfélagið á meðan þeir bíða eftir niðurstöðu. Við hittum þá ekki í búðinni, þeir eru ekki vinir barnanna okkar og við vitum ekki hvað þeir heita. Þeir eru tölur, umsóknir hjá stofnun, andlitslaus hópur. Og það sama átti að gilda um þessa fjölskyldu. Hún var búin að vera á landinu í fjóra mánuði þegar blaðamaður Fréttablaðsins fjallaði um félagsstarf hælisleitenda og tók eftir að ekkert barnanna var í skóla á skólatíma. Í kjölfarið var fjallað um aðstæður fjölskyldunnar í Fréttablaðinu, að það eina sem þau hefðu fyrir stafni væri að horfa út um gluggann og að ekki væri búið að sækja um lögbundna skólavist fyrir börnin. Viku eftir umfjöllun voru börnin þrjú komin í skóla, búin að hitta krakka, eignast daglegt líf og fjölskyldan fékk loksins að tilheyra samfélagi.
Þess vegna deila börn í Laugarneshverfi undirskriftasöfnun á samfélagsmiðlunum með orðunum: „Plís, skrifið undir. Ég vil ekki að vinkona mín verði send úr landi.“ Við vitum að milljón aðrir flóttamenn eru í lífshættu og við vitum að einhverjar reglur segja hitt og einhver lög segja þetta. En við erum að berjast fyrir nágranna, skólasystur og félaga. Þetta eru ekki lengur tölur, heldur manneskjur. Þetta er ekki tilfinningaklám, heldur raunveruleiki.
Og nú velti ég fyrir mér af hverju Útlendingastofnun sótti ekki um skólavist fyrir börnin fyrr en eftir þrýsting. Tafðist það raunverulega vegna anna? Eða vildu þau ekki koma okkur hinum í uppnám? Eða er kannski vesen að græja skólavist fyrir alla hælisleitendur, hleypa þeim út í samfélagið og eiga á hættu að fá senda undirskriftalista í hverri viku?
Tengdar fréttir

Forstjóri Útlendingastofnunar: "Þetta voru mistök hjá okkur“
Samtökin, Barnaheill - save the children á Íslandi, segja engan vafa á því að verið sé að brjóta barnasáttmála sameinuðu þjóðanna með því að veita börnum hælisleitenda ekki skólavist, en á annan tug barna í slíkum aðstæðum eru nú utan skóla hér á landi. Forstjóri Útlendingastofnunar segir stofnunina ekki anna eftirspurn.

Fjölskyldan fékk synjun um hæli
Albönsk fjölskylda þarf að fara úr landi sem fyrst. Börnin eru nýbyrjuð í skóla í Laugarneshverfinu og eru alsæl. Foreldrarnir segjast ekki þurfa fjárhagsaðstoð, bara leyfi til að vinna og búa á Íslandi.

Mikil reiði og sorg vegna niðurstöðu Útlendingastofnunar
Mikill fjöldi fólks hefur tjáð sig á Facebook og sveiflast milli þess að vera sorgmætt vegna brottvikningar albönsku fjölskyldunnar og svo reitt Útlendingastofnun.

Börn hælisleitenda fá ekki skólavist
Þau Laura fimmtán ára, Janie þrettán ára og Petrit níu ára komu til Íslands í byrjun júní. Þau spyrja foreldra sína daglega hvenær þau fái að fara í skóla. Útlendingastofnun sótti ekki um skólavist fyrir systkinin þrátt fyrir ítrekaðar áminningar foreldra barnanna, lögfræðinga og umboðsmanns barna.