Körfubolti

Martin átti stoðsendinguna í dramatískri sigurkörfu | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Martin Hermannsson í leik með íslenska landsliðinu á Eurobasket.
Martin Hermannsson í leik með íslenska landsliðinu á Eurobasket. Vísir/AFP
Martin Hermannsson og félagar í LIU Brooklyn liðinu byrjuðu bandaríska háskólatímabilið á dramatískum sigri á Loyola á útivelli í nótt. Leikurinn vannst á magnaðri flautukörfu frá Joel Hernandez.

Martin Hermannsson átti mjög góðan leik í fyrsta leik tímabilsins. Auk þess að eiga stoðsendinguna í sigurkörfunni þá var hann næststigahæstur í sínu liði með 14 stig. Martin gaf alls 7 stoðsendingar, tók 4 fráköst og stal 2 boltum.

Martin var með 7 af 14 stigum og 5 af 7 stoðsendingum sínum í seinni hálfleiknum en lokastoðsendingin kom við dramatískar aðstæður.

LIU-liðið átti innkast þegar 5 sekúndur voru eftir af leiknum og staðan var 68-68. LIU átti ekki innkastið en tókst að verja skot frá liðsmönnum Loyola og bruna í hraðaupphlaup.

Martin náði varnarfrákastinu og leit út fyrir að ætla að reyna að skot frá miðju, Martin hætti hinsvegar við það og kom honum áfram á Joel Hernandez sem skellti þristinum niður, á öðrum fætinum og í spjaldið og ofaní.

Það er hægt að sjá þessa ótrúlegu sigurkörfu hér fyrir neðan. Martin er í treyju númer fimmtán.

Martin er nú einn eftir í LIU Brooklyn liðinu eftir að Elvar Már Friðriksson ákvað að hætta í skólanum og reyna frekar fyrir sér í Barry-háskólanum í Miami.

Næsti leikur LIU Brooklyn verður strax á fimmtudaginn þegar liðið mætir Maine í fyrsta heimaleik tímabilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×