Fjórir efstir í Mexíkó eftir fyrsta hring á OHL Classic 13. nóvember 2015 09:00 Justin Leonard var frábær á fyrsta hring. Getty
Reynsluboltinn Justin Leonard deilir efsta sætinu á OHL Classic mótinu sem fram fer á El Camaleon vellinum í Mexíkó en hann ásamt Derek Fathauer, Shawn Stefani og Aaron Baddeley eru á sex höggum undir pari. Margir kylfingar koma á eftir þeim á fimm og fjórum undir pari, meðal annars Graeme McDowell, Keegan Bradley og Camilo Villegas. Skrautlegasta hring dagsins átti þó Suður-Afríkumaðurinn Thomas Aiken en hann fór holu í höggi á fyrstu holu og fékk síðan tvo fugla á næstu tvær. Hann var því á fjórum höggum undir pari eftir aðeins þrjár holur en þá fór að snúa á ógæfuhliðina. Aiken endaði á því að fá fjóra skolla og einn fjófaldan skolla það sem eftir var og endaði daginn mjög neðarlega á skortöflunni, á 74 höggum eða þremur yfir pari. Beint útsending frá öðrum hring á OHL Classic hefst á Golfstöðinni í kvöld klukkan 18:00.
Golf Mest lesið Íslandsmeistarinn úr leik og þrettán ára gutti stal senunni Sport „Ég bað ekki um fjögur stig en fékk fjögur stig“ Sport Körfuboltakvöld: Tilþrif 6. umferðar Körfubolti Arftaki De Rossi entist í aðeins átta leiki Fótbolti Inter klúðraði gullnu tækifæri til að komast á toppinn Fótbolti Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Enski boltinn Mick Schumacher gaf sjaldgæfa innsýn inn í líf föður síns Formúla 1 Orri Steinn spilaði hálftíma í sigri á toppliði Barcelona Fótbolti „Frammistaðan var góð“ Enski boltinn Miklu fleiri bakteríur í ræktinni en á klósettsetunni Sport Fleiri fréttir „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira