Fótbolti

Guðmundur og félagar héldu sér uppi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðmundur og félagar leika í norsku úrvalsdeildinni 2016.
Guðmundur og félagar leika í norsku úrvalsdeildinni 2016. mynd/start
Start tryggði sér áframhaldandi veru í norsku úrvalsdeildinni með 3-1 sigri á Jerv á heimavelli í seinni leik liðanna í umspili um sæti í úrvalsdeildinni á næsta tímabili.

Fyrri leiknum lyktaði með 1-1 jafntefli og Start vann því einvígið,  4-2 samanlagt.

Guðmundur Kristjánsson var í byrjunarliði Start og lék allan leikinn.

Guðmundur hefur verið í herbúðum Start frá árinu 2012 en hann kom til norska liðsins frá Breiðabliki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×